Gagnrýnendur Michelin af öllum stærðum og gerðum

Gerald Passedat, eigandi Le Petit Nice sem fékk í síðasta …
Gerald Passedat, eigandi Le Petit Nice sem fékk í síðasta mánuði þriðju Michelin stjörnuna. AP

Veitingahúsaeigendur verið á verði yfirmaður Michelin bókanna segir að veitingahúsagagnrýnendur fyrirtækisins séu af öllum stærðum og gerðum en ekki endilega einmanna karlmenn sem sitja einir að snæðingi líkt og margir telja.

„Þetta eru karlmenn, konur, feitir, grannir, litlir, hvítir, litaðir, Japanar, Frakkar og aðrir Evrópubúar," segir Christian Delhaye, sem hefur yfirumsjón með Michelin's bókunum og kortum.

„Þeir borða yfirleitt ekki einir," sagði hann á blaðamannafundi í París í dag. „Um miðjan dag gæti það verið hópur manna úr viðskiptalífinu sem tala um allt annað heldur en matargerðarlist. Á kvöldin gæti þetta verið par sem liti út fyrir að vera fagna trúlofun."  

Alls eru 80 veitingahúsagagnrýnendur starfandi á vegum Michelin og hefur hver þeirra heimild upp á að eyða yfir 100 þúsund evrum á veitingahúsum, hótelum og bensínstöðvum segir  Delhaye. En enginn veit hver þeir eru, að minnsta kosti eiga þeir að halda því leyndu við hvað þeir starfa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú heldur af þér með að gera eitthvað. Leyfðu sjálfstraustinu að njóta sín, því það er þitt bezta vopn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú heldur af þér með að gera eitthvað. Leyfðu sjálfstraustinu að njóta sín, því það er þitt bezta vopn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar