Lögreglan í Róm hefur bjargað tveimur systrum frá Búlgaríu úr ánauð í sirkús á Suður-Ítalíu. Önnur þeirra, 19 ára, var neydd til að stinga sér til sunds með mannæturánfiskum í gegnsæjum tanki, allt í nafni skemmtanagildis.
Hin systirin, 16 ára, var þvinguð ofan í gám þar sem snákum var hent til hennar. Hún hlaut skaða af völdum eins þeirra, að sögn lögreglu.
Lögreglan hefur handtekið þrjá Ítala sem stjórnuðu sirkúsnum í Napólí og sakar mennina um þrælahald. Stúlkurnar fengu um 12.000 krónur á viku og bjuggu í hjólhýsi sem áður var notað til flutnings á dýrum, að því er fram kemur á fréttavef Reuters.