Bandaríkjamaður, sem ætlaði að nota byssu til að koma fyrir gervihnattadiski á húsi sínu, skaut konu sína til bana fyrir slysni.
Manninum, sem heitir Ronald Long og býr í Missouri, gekk illa að bora í húsvegginn og á endanum sótti hann 22 kalíbera skammbyssu og skaut tvisvar á vegginn. Ekki vildi betur til en svo, að önnur kúlan endurkastaðist af húsveggnum og lenti í brjósti Patsy, eiginkonu Ronalds. Konan var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést.
Búist er við að Ronald verði ákærður fyrir manndráp af gáleysi.