John Gonzales, sem eitt sinn rak sæðisbanka á netinu, hefur verið dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir fjársvik, meinsæri og skjalafals á Bretlandi.
Viðskiptavinir sæðisbankans voru aðallega einhleypar konur og lesbísk pör, sem ekki geta nýtt sér þjónustu sæðisbanka breska ríkisins. Reksturinn gekk vel framan af, en þegar fyrirtækið var tekið til gjaldþrotaskipta kom í ljós að Gonzales hafði falsað bókhaldið.