Lás á buxurnar til að draga úr vændi

Indónesísk stjórnvöld lögðu til að nuddkonur myndu setja lás á buxurnar sínar til að draga úr vændi.

Þessi reglugerð var tekin upp í bænum Batu, sem er vinsæll ferðamannastaður. Sýndar voru myndir í dagblaði af nuddkonu með hengilás á buxunum þannig að hún gat ekki kippt þeim niður. Þar stóð að markmiðið væri að draga úr vændi á svæðinu og viðhalda góðri ímynd staðarins.

"Þetta er ekki góð leið til að draga úr lauslæti. Þetta móðgandi fyrir konur og lætur þær líta út fyrir að vera seki aðilinn,“ sagði Meuthia Hatta, ráðherra valdeflingar kvenna í Batu.

Bærinn er í tæplega 50 km. fjarlægð  frá Surabaya, næst stærstu borg Indónesíu. Þar er mikill kynlífsiðnaður og mikið vændi er tengt nuddstofum, að því er fram kemur á fréttavef Reuters.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Létta lundin þín mun afla þér stuðnings og samvinnu á vinnustað. Farðu oftar út að ganga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Létta lundin þín mun afla þér stuðnings og samvinnu á vinnustað. Farðu oftar út að ganga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan