Þegar búlgarskur bóndi sá fram á að þriðja hjónaband sitt væri að fara í handaskolum greip hann til óhefðbundinna aðgerða. Stoil Panayotov skipti á eiginkonunni og átta vetra huðnu á markaðstorgi heimabæjar síns.
„Daginn áður sagði vinur minn mér að hann væri vonlaus í kvennamálum og að sér litist vel á konuna mína,“ segir Panayotov. „Konan mín samþykkti þetta, og við skiptum.“