Lögregla í Ástalíu tók nýverið til athugunar og efnagreiningar DNA-sýni úr ælu til að koma upp um glæpamann sem rændi pósthús í borginni Adelaide. Að sögn hafði hinn tvítugi Ahmed Habib Jalloul orðið svo stressaður þegar hann rændi pósthúsið að hann kastaði upp á gólfið áður en hann lagði á flótta með jafngildi 250.000 króna.
Jalloul hlaut þriggja og hálfs árs dóm fyrir ránið, en tveir samverkamenn hans ganga enn lausir.