Kvikmyndaver í Hollywood ætla sér að gerast umhverfisvæn. Í rannsókn sem framkvæmd var í háskóla í Hollywood og gefin var út árið 2006 kom í ljós að framleiðsla á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum leiddi til mikils skaða fyrir umhverfið og aðeins olíuhreinsunarstöðvar voru að valda meiri skaða.
Nú hafa myndver heitið því að bæta sig í þessum efnum og leggja sitt af mörkum í að vera umhverfisvæn. Búast má við að kvikmyndaver fjölgi myndverum svo hægt sé að kvikmynda meira efni innandyra í stað þess að fara á staðinn. Þetta mun hafa í för með sér minni ferðalög með ýmis konar tæki og varning og draga heilmikið úr rusli sem safnast gjarnan fyrir á hverjum tökustað.