Burger King í London hyggst fyrst skyndibitafyrirtækja bjóða upp á eðalborgara sem munu kosta 85 pund eða 12.000 íslenskar krónur.
Matreiðslumeistari á Savoy hótelinu í London „þróar“ nú uppskriftina að hamborgaranum sem verður búinn til úr fyrsta flokks hráefni. Hamborgarinn verður í boði í fínni hverfum London eins og Kensington eða Chelsea. Hægt verður að kaupa franskar og kók með dýrðinni.