Fjögurra ára Bítlaaðdáandi frá Suður-Kóreu hefur eignast milljónir aðdáenda á netinu. Foreldrar hans settu myndband af honum syngja bítlalagið vinsæla „Hey Jude" inn á myndbandavefsíðuna YouTube og hafa meira en 4,5 milljónir manna skoðað myndband unga Bítlaaðdáandans á síðunni.
Ha Youngwoong, er mikill aðdáandi Bítlanna og segir að sig langi að ferðast um allan heim og koma fram á tónleikum í framtíðinni.