Karlmaður hefur kært flugfélagið JetBlue fyrir að hafa neytt hann til að vera á flugvélarklósetti í þrjá tíma í flugi frá San Diego til New York. Gokhan Mutlu fékk sæti í fullri vél eftir að ein flugfreyjan lofaði að hann fengi sæti hennar um borð. Eftir rúma klukkustund fór hún þó fram á að hún fengi sætið á ný eftir að hafa fundið fyrir óþægindum. Mutlu segist þá hafa neyðst til að dvelja á klóinu og fer hann fram á 160 milljónir króna í skaðabætur.