Kanadísk kona hefur játað að hafa nærri því orðið kærasta sínum að bana eftir að hafa stungið hníf í brjóstkassa hans meðan á samförum stóð. Kærastinn hafði beðið konuna um að skera út hjarta á brjóstkassa sinn.
Konan heitir Catherine McCoubrey og er 25 ára gömul. Atvikið átti sér stað í febrúarmánuði 2007 og hefur hún verið dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Maðurinn var fluttur á sjúkrahús og er nú gróinn sára sinna.