Hvað gerir nýsjálenskur maður sem staddur er í biðröð í búð og áttar sig á því að hann er ekki með neinn pening? Einum slíkum datt það snjallræði í hug að borga með marijúana.
Því miður fyrir hann þá komst hann ekki að því hvort hugmynd hans hefði virkað því maðurinn fyrir aftan hann í biðröðinni reyndist vera lögreglumaður. Hann var handtekinn áður en hann gat gert tilraun til að kaupa poka af M&M og kartöfluflögur.
Svo virðist sem hungrið hafi alfarið ráðið ferðinni þar sem verið var að dæla bensíni á lögreglubíl rétt hjá honum og hann tók ekki eftir honum. Maðurinn játaði að hafa í fórum sínum kannabisefni og nú bíður hann dóms, að því er fram kemur á fréttavef Reuters.