Karlmaður sem bjargað var úr húsarústum í Sichuan-héraði í Kína í síðustu viku hefur áður upplifað svipaðar hörmungar. Því árið 1976, þegar jarðskjálfti reið yfir Kína sem kostaði 240 þúsund manns lífið, þá bjargaðist hann á undraverðan hátt eftir að hafa legið grafinn undir húsarústum í tíu daga.
Í kínversku dagblaði í dag er saga Taoqi, sem er sextugur, rakin. Þar kemur fram að Taoqi hafi verið staddur í stjórnarbyggingu í Beichuan-sýslu þegar byggingin hrundi í jarðskjálftanum þann 12. maí sl. Var hann sá eini sem var í byggingunni sem lifði af.
Árið 1976 grófst Taoqi undir húsarústum og var bjargað þaðan eins og áður sagði tíu dögum síðar. Í viðtali við Taoqi árið 1976 kom fram að hann hafi heyrt hávaða og allt farið á hreyfingu. Þegar hann hafi áttað sig á því að um jarðskjálfta var að ræða var of seint að forða sér.