Dagblaðið New York Post greinir frá því í dag að maður hafi verið handtekinn fyrir að hafa sveiflað ryðguðu sjóræningjasverði í versluninni Macy’s í Manhattan.
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir ólöglegan vopnaburð. Við handtöku sagðist maðurinn vera meðlimur í liði þar sem algengt er að liðsmenn klæðist sjóræningjabúningum og notist við sverð og að hann hefði einmitt verið á leiðinni á leik.