Lögreglan í Kanada hefur tekið pappalöggur í sína þjónustu til að hafa hemil á ökuföntum og draga úr umferðarslysum. „Löggurnar“ þykja æði raunverulegar, svo mjög að vörubílstjóri í Vancouver gaf sig á tal við eina þar sem hún „stóð“ við fjölfarna götu þar í borg. Kanadamenn eru ekki manna fyrstir til að fara þessa óvenjulegu leið en lögreglan varar ökumenn við því að lifandi lögga geti leynst á bak við pappann.