Ný tækni verður tekin í notkun á tíu flugvöllum í Bandaríkjunum sem gerir öryggisvörðum kleift að skima í gegnum föt flugfarþega. Þetta er gagnrýnt fyrir að ganga inn á einkalíf fólks, en yfirvöld vísa því á bug. Segja þau myndir ekki verða geymdar og spéhræddum bjóðist enn gamaldags líkamsleit.