Fjöldi fólks heimsótti Times Square í New York í gær til þess að skoða sex brúðarkjóla gerða úr klósettpappír. Um keppni er að ræða sem haldin er ár hvert og eru verðlaunin 1 þúsund dalir. Verðlaunakjóllinn í ár kemur fram Illinois og er eftir Katrinu Chalifoux sem eyddi tveimur vikum í að búa til kjólinn.
Terro Glover frá Texas var í öðru sæti og Ann Lee frá Hawaii hafnaði í þriðja sæti keppninnar en þetta er fjórða árið í röð sem hún fer fram.