12 milljónir býflugna leika nú lausum hala við stærsta þjóðveg Kanada í norðvestur New Brunswick eftir að flutningabíll, með þær innanborðs, valt.
Í bílnum voru 330 kassar sem innihéldu býflugurnar. Hann var að aka yfir skábraut þegar farmurinn færðist til með fyrrgreindum afleiðingum.
Að sögn lögreglunnar á staðnum hefur mikið úrhelli hjálpað til við að halda býflugunum nálægt bílnum. Býflugnasérfræðingar voru kallaðir til aðstoðar. Ökumanninn sakaði ekki.