Karlar hafa öldum saman beitt ýmsum brögðum til að viðhalda kyngetunni þegar árin færast yfir. Leitin að kynörvandi efnum hefur tekið á sig ýmsar myndir og hafa ófáir greitt fúlgur fjár fyrir ólíklegustu meðul.
Ef til vill hafa karlar þó verið að leita langt yfir skammt, því samkvæmt nýrri rannsókn vísindamanna við Texas A&M-háskólann hafa vatnsmelónur, einkum börkurinn, sömu áhrif á blóðstreymið.