Fylliraftur tók þátt í brunaútkalli

Þýskum slökkviliðsmönnum brá heldur betur í brún er þeir sáu að mjög ölvaður maður hafði slegist í hópinn með þeim er þeir voru í miðju brunaútkalli. Maðurinn var klæddur í slökkviliðsgalla með hjálm á höfði.

Að sögn lögreglu þaut maðurinn, sem er 38 ára, á slökkviliðsstöðina þegar hann heyrði brunabjölluna hringja. Á slökkvistöðinni aðstoðuðu grunlausir slökkviliðsmenn manninn við að klæða hann í hlífðargalla. Í framhaldinu fór maðurinn inn í næsta slökkviliðsbíl sem var tilbúinn.

Þegar slökkviliðið kom á staðinn áttuðu menn sig fljótlega á því hvað væri á seyði og kölluðu eftir aðstoð lögreglu.

„Þegar eldur kviknar, þá eiga allir að leggjast á eitt,“ sagði maðurinn við lögregluna er hún spurði hann hvað hann hefði verið að gera. Maðurinn var látinn sofa úr sér á lögreglustöðinni og var sleppt í framhaldinu. Hann verður ekki ákærður fyrir athæfið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir