Nektardansmær var handtekin í jarðlest í Santiago, höfuðborg Chile, í gær en hún hefur undanfarna viku dundað sér við að fækka fötum og gæla við súlur í lestarvögnum borgarinnar við mismikla ánægju ferðafélaga.
Dansmærin, Monserrat Morilles, segist hafa gert þetta til þess að mótmæla hreintrúarstefnu sem ríkir í landinu.
Segist hún hafa vitað að hún kæmist ekki endalaust upp með dansinn en í heila viku stundaði hún það að klæða sig úr og daðra við súluna í lestarvögnum þar sem engin börn voru. Óhætt er að segja að hún hafi unnið hratt því dansinn stundaði hún á þeim tíma sem jarðlestin þaut á milli tveggja stöðva