Vændishús í Nevada býðst nú til að greiða bensínkostnað vændiskaupenda til að geta haldið uppi starfseminni yfir hina annars rólegu sumarmánuði.
Allir sem eyða 300 dölum eða meira á Shady Lady Ranch fá nú gjafakort upp á 50 dali á næstu bensínstöð. Eigandinn segir viðskiptin blómstra eftir að byrjað var að bjóða upp á þetta.