Húsmóðir í Den Haag í Hollandi missti 900 evrur, jafnvirði 100.000 króna, ofan í salernið í vikunni, og sturtaði niður. Þar með hurfu sumarleyfisdraumar fjölskyldunnar ofan í skolpræsið. Konan hringdi örvingluð á borgarstarfsmenn sem brugðust vel við og fundu peningana með aðstoð smámyndavéla og björguðu þeim frá glötun. Peningarnir voru svo hengdir á þvottasnúruna áður en haldið var í fríið.