Það er misjafnt mávalífið. Í Reykjavík er litið á mávinn sem plágu og vopnaðir menn gerðir út af örkinni til að halda honum í skefjum. Ekki í bænum Bridgewater í Somerset í Bretlandi. Þar fara menn þveröfugt að.
Þetta kom berlega í ljós á dögunum þegar sjö slökkviliðsmenn á tveimur slökkvibílum lögðu sig alla fram í á aðra klukkustund við að bjarga mávi sem hafði fest sig í þaki verksmiðju einnar.
Fjölförnum vegi var lokað í alls sjötíu og fimm mínútur og umferð beint annað, meðan á björguninni stóð. Er nú gert að sárum mávsins.