Samkynhneigðir Ástralar geta farið að hlakka til að verja ævikvöldinu saman. Skammt utan við Melbourne hefjast senn framkvæmdir við þorp fyrir homma, lesbíur og transgender fólk sem komið er af léttasta skeiði. Í þorpinu verða 120 tveggja og þriggja herbergja íbúðir og öll sú þjónusta sem ellin krefst.