Komið var með kött í dýraathvarf í New Jersey í Bandaríkjunum í vikunni. Greinilegt er að kisi hefur átt betri daga því hann reyndist vega rúm 20 kíló og hafa ekki sést margir feitari kettir í heiminum.
Kötturinn var raunar svo þrifalegur, að erfitt var að kyngreina hann. Fyrst var talið að hann væri læða en við nánari skoðun kom í ljós að þetta er fressköttur.