Þeir hafa í nógu að snúast afgreiðslumennirnir í fataverslun einni í Cleveland í Bandaríkjunum, enda ekki heiglum hent að hræra kokkteila og finna réttu skyrtustærðina fyrir bargestinn í sömu andránni.
Til að krydda þjónustuna enn frekar hefur kvenfötum nýlega verið bætt við úrvalið í versluninni, svo að viðskiptavinirnir geta nú vænst þess að komast í kynni við hitt kynið í búðarferðinni. „Nei, mikið fer þetta þér vel!“ gæti þá verið upphafslínan, um leið og suðrænum kokkteilum er bætt við reikninginn. baldura@mbl.is