Dýraverndunarsinnar hafa miklar áhyggjur af örlögum þúsunda katta en yfirvöld í Peking standa nú fyrir allsherjar götuhreinsun fyrir ólympíuleikana.
Deng Nainai sem býr í Peking er afar stolt af því að veita heimilislausum dýrum húsaskjól en segir að hún hafi ekki undan við að bjarga dýrunum.
Yfirvöld í Peking hafa sett ný lög sem kveða á um að flækingsköttum og -hundum í borginni skuli útrýmt.