57 ára velsk kona stendur frammi fyrir því að verða rekin úr félagsíbúð sinni, þar sem hún vekur nágranna sinn með því að sturta ítrekað niður í klósettinu hverja nótt.
Mwynwen Jones hefur truflað nágranna sinn síðustu 20 árin með næturvenjum sínum, en lögmaður hennar segir hana hafa vanið sig á að sturta ávallt tvívegis niður eftir notkun og að mjög hljóðbært sé í húsinu.