Tólf ára drengur var lagður inn á sjúkrahús á Englandi eftir að hafa keppt við frænda sinn um hvorum gengi betur að kveikja í eigin freti. Piltinum gekk vonum framar – þannig að eldur barst í nálægan bensínbrúsa. Drengurinn er með brunasár á aftanverðum fótleggjum og þumalfingri.