Kaþólskur prestur á Ítalíu segist vera að skipuleggja fyrstu fegurðarsamkeppni nunna í heiminum.
Presturinn Antonio Rungi segir að samkeppnin eigi að hefjast á vefsetri hans í september. Hann hefur beðið nunnur að senda myndir af sér og segir að netverjar eigi að velja sigurvegarann.
„Nunnur eru fyrst og fremst konur og fegurð er gjöf frá Guði,“ hafði ítalska dagblaðið Corriere della Sera eftir klerkinum. Hann lagði áherslu á að ekki væri ætlast til þess að nunnurnar væru í baðfötum.