Læknar á sjúkrahúsi á Norður-Írlandi settu nýlega rangan fótlegg fjögurra ára stúlku í gifs, eftir að hún fótbrotnaði í bílslysi. Megan Jack fann enn fyrir miklum sársauka eftir að heim var komið af sjúkrahúsinu. Sögðu læknarnir að sársaukinn væri eðlilegur, en mistökin voru leiðrétt eftir að móðirin hafði hringt og bent þeim á klúðrið.