Lögreglan í Brasilíu kveðst hafa komið til bjargar manni sem hafði verið lokaður í skottinu á bíl sínum í þrjá sólarhringa. Maðurinn hafi verið heill heilsu eftir dvölina, en þurft að fara í „gott þrifabað.“
Tveir vopnaðir menn námu manninn á brott á föstudaginn og notuðu bílinn hans við nokkur rán. Þegar bíllinn varð bensínlaus skildu þjófarnir hann eftir í hverfi þar sem mikið er um glæpi í borginni Belo Horizonte.
Lögreglumenn sem gengu fram á bílinn heyrðu skottið barið að innan, og hleyptu bíleigandanum út.