Ferðamenn flykkjast nú til smábæjar í suðurhluta Þýskalands til að skoða veggmynd, sem sett hefur verið upp á ráðhúsvegg bæjarins. Þar eru helstu stjórnmálamenn landsins sýndir naktir í vafasömum stellingum.
Skiptar skoðanir eru að vonum um myndina og sumum finnst hún dónaleg og jafnvel klámfengin.