47 ára ísraelsk kona sem nýlega fæddi sitt nítjánda barn segir fæðingu þess hafa komið sér á óvart. Þetta kemur fram á fréttavef Ha'aretz.
„Ég átti ekki von á því á mínum aldri að eignast fleiri börn,” segir Sima Zalmanov sem er bókstafstrúar og skólastjóri í bænum Sefat.
Auk þess sem hún á nítján börn á hún von á sínu áttunda barnabarni innan mánaðar.