Breskar konur fara í auknum mæli í brjóstastækkun og hefur orðið þreföldun þar á síðan fyrir fimm árum.
Á síðasta ári framkvæmdu Samtök breskra lýtalækna (BAAPS) 6.497 brjóstastækkanir, en þær voru 2.361 árið 2002.
„Ástæðan er margþætt m.a. framfarir í skurðlækningum, styttri sjúkrahúsdvöl auk þess sem ör gróa hraðar“ sagði talsmaður samtakanna. „Áður voru brjóstastækkanir bara fyrir stjörnur og fræga fólkið en almenningur tekur í auknum mæli við sér.“