Lögreglumenn við hefðbundið eftirlit í Delhi í Illinois í Bandaríkjunum sáu harla óhefðbundna sjón á Cabin-kránni á fimmtudagskvöldið. Þjónustustúlkan á barnum var kviknakin við störf.
Þeir sáu ennfremur að við svo búið mátti ekki standa og handtóku barþjónustuna, og þar sem hún var eini starfsmaðurinn á vakt var ekki um annað að ræða en að loka barnum.
Þjónustustúlkan, 33 ára Janet Brannon, var ákærð fyrir brot á lögreglusamþykkt, en látin laus gegn átta þúsund dollara tryggingu.