Áströlsk kona var í sárustu vandræðum eftir að hún rétti geltinum Bruce litla fingur en hann tók allan handlegginn. Caroline Hayes, sem ku vera mikill dýravinu, tók svínið að sér til hjúkra honum eftir sýkingu í auga en síðan gerðist Bruce æ tilætlunarsamari og á endanum komst Caroline ekki lengur á kamarinn.
„Í morgun þegar ég ætlaði á klósettið, sem er útifyrir, vildi svínið ekki hleypa mér út. Ég opnaði hurðina en hann ýtti henni svo harkalega aftur að ég datt aftur fyrir mig inn í húsið,“ segir Caroline sem viðurkenndi loks að hafa misst stjórn á aðstæðum.
„Þetta er gullfallegur göltur en hann er bara svo stór og frekur.“ Hún kvartar yfir því að svínið hafi krafist eignarhalds yfir heimili hennar og landareign. „Hann var farinn að verða verulega skapillur og ég orðin hálfskelkuð við hann. Sérstaklega þegar hann ýtir mér til og frá, og svo var hann farinn að banka á dyrnar hjá mér með höfðinu klukkan fimm á morgnana.“
Vegna ástar sinnar á dýrum vildi Caroline ekki leita hjálpar fyrr en eftir að hafa verið nánast í gíslingu í 10 daga, því hún óttaðist um örlög Bruce. Hann var loks fjarlægður af heimili hennar í morgun en að hennar beiðni verður honum ekki slátrað heldur fær hugsanlega góða stöðu á kynbótastöð svína í nágrenninu.