Ung hjón í Bretlandi munu líklega seint gleyma brúðkaupsdegi sínum en þau voru handtekin nær samstundis eftir brúðkaupið. Hjónin, maður frá Nígeríu og portúgölsk eiginkona hans, voru handtekin vegna gruns um brot á breskum innflytjendalögum.
Brúðgumanum hefur verið vísað úr landi en brúðurin þarf að bíða þess að ákvörðun verði tekin um framtíð hennar í Bretlandi.