Unglingspiltur í Flórída í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa látið 85 ára gamla ömmu sína leika í bófarappmyndbandi og vera með hótanir og kjaftbrúk vopnuð skammbyssu.
Michael Alfinez, sem er 18 ára gamall, hefur játað að hafa misnotað eldri borgara auk þess sem hann hefur gengist við ákærum um brot á lögum um skotvopn, að því er segir á vef BBC.
Það sést á myndbandi þegar Alfinez platar ömmu sína til að sveifla skammbyssu fyrir framan myndavélina. Hann fékk hana m.a. til að segja: „Þetta er fyrir öll svínin“ og „Ég mun skjóta ykkur“.
Alfinez-fjölskyldan segir að um misskilning sé að ræða.
Að sögn lögreglu viðurkenndi drengurinn að hafa klætt ömmu sína upp sem bófarappara auk þess sem hann fékk hana til að sveifla skammbyssu og peningum fyrir framan myndavélina.
Amman var með svarta lambhúshettu á höfðinu og hún lét ýmis ókvæðisorð falla að hætti bófarappara.
Unglingspilturinn hefur einnig viðurkennt að hafa skotið úr skammbyssu úr bifreið sem var á ferð, og fyrir að hafa skotið á byggingu.