Einhverjir höfðu komið fyrir borðum á göngubrýr yfir Miklubraut í morgun þar sem ökumenn voru beðnir um að flauta ef þeir vilja nýja seðlabankastjórn og ef þeir vilja ekki greiða skuldir auðmanna. Borðarnir hafa nú verið teknir niður og ekki er vitað hver kom þeim fyrir í morgunsárið.