Adolf Hitler varð fyrir miklu áfalli þegar Landsbankinn féll vegna þess að hann ávaxtaði fjármuni þriðja ríkisins á Icesave-reikningi. Þetta má að minnsta kosti lesa út úr nýrri textun einhverra spaugara á atriði úr kvikmyndinni Der Untergang, sem birt hefur verið á vefnum YouTube.
„Okkur vantar meira fjármagn til að ljúka við hina æsispennandi framhaldsþáttaröð Derrick," segir liðsforingi við Hitler, „og við þurfum að auka framleiðslu á Haribo gúmmíböngsum um 50%."
„Ekkert mál, taktu það bara út af Icesave," segir Hitler.
„Foringi... Icesave. Foringi, Landsbankinn er farinn á hausinn og Icesave líka."
Hitler tekur nú eitt af sínum frægu æðisköstum en róast síðan og segir. „Þetta er samt enginn heimsendir. Við eigum ennþá bréf í FL Group. Við seljum þau... og tökum yfir Evrópu!"