Kínverskir fornleifafræðingar standa gapandi eftir að þeir fundu pínulítið svissneskt úr í 400 ára gömlu grafhýsi. Úrið er á hring og fannst þegar fræðingarnir voru að gera heimildarmynd ásamt tveimur blaðamönnum frá bænum Shangsi.
„Þar sem við vorum að losa jarðveginn frá líkkistunni datt allt í einu steinbrot á gólfið og það heyrðist málmhljóð,“ sagði Jiang Yanyu fyrrverandi forstöðumaður í Guangxi-safninu.
Þegar mennirnir voru búnir að hreinsa af hlutnum sáu þeir sér til mikillar undrunar að þetta var úr. Klukkan hafði stöðvast á 10.06 og á bakhliðina hafði verið grafið nafnið Sviss.
Sérfræðingur segjast ringlaðir yfir þessum fundi þar sem talið var að gröfin hefði verið óhreyfð í 400 ár, eða allt frá Ming-tímabilinu.
Rannsóknum á svæðinu hefur verið frestað á meðan beðið er eftir sérfræðingum frá Peking sem vonandi geta aðstoðað við að afhjúpa þennan mikla leyndardóm.