Málverk eftir Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússa, seldist fyrir andvirði 140 milljóna króna á uppboði í Pétursborg um helgina. Uppboðið var haldið til styrktar krabbameinssjúkum börnum og það var galleristinn Natalía Kurnikova sem keypti. Verkið sýnir frostrósóttan kofaglugga, en að öðru leyti fer fáum sögum af færni listmálarans.