Tíðni er á milli mikillar streitu á heimilum og offitu barna, samkvæmt niðurstöðum nýrrar sænskrar rannsóknar. Samkvæmt henni eru tvöfalt fleiri fimm til sex ára börn, sem búa á heimilin þar sem streituvaldar er fáir, of feit en börn, sem búa á heimilum þar sem streita er lítil. Þetta kemur fram á fréttavef Reuters.
Koch og samstarfsfólk hans mátu streitustig á 7443 sænskum heimilum frá fæðingu barnanna og þar til þau náðu fimm til sex ára aldri. Við það notuðu þau upplýsingar frá foreldrum barnanna um þekkta streituvalda.
Síðar var holdafar barnanna metið og reyndust þá 4,2% barnanna vera of feit. Greinileg fylgni reyndist einnig vera á milli streitunnar á heimilinu og ofþyngdar barnanna.
Koch segir þó ljóst að streita á heimilinu sé ekki eini þátturinn sem stuðli að ofþyngd barna.
52% barnanna sem tóku þátt í könnuninni voru drengir.