Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur kynnt áform sín um að setja öll málverk í opinberri eigu í Bretlandi inn á vef sinn og jafnframt að opna ókeypis aðgang á netinu að hinu viðamikla kvikmyndasafni Art Counsil, listaráðinu breska.
Í samvinnu við Public Catalogue Foundation eiga öllum málverk sem teljast í opinberri eigu - um 80% þeirra eru nú ekki til sýnis fyrir almenning - að vera orðnar aðgengilegar almenningi á vef stofnunarinnar árið 2012.
BBC hefur í huga að setja upp nýjan hliðarvef á bbc.co.uk vefsetri sínu sem kallast Your painting, þar sem notendur geta skoðað og fengið upplýsingar um málverk í eigu þjóðarinnar.
Plublic Catalogue Foundation var stofnað 2003 og hefur nú þegar lokið við að skrá og mynda um 30% allra málverka sem teljast í eigu hins opinbera.
Þar að auki segja forráðamenn BBC að þeir eigi nú í viðræðum við Art Counsil um að veita almenningi ókeypis aðgang að safni þess í fyrsta sinn, þar á meðal umfangsmiklu kvikmyndasafni sem nær allt aftur til sjötta áratugarins.