Margur er knár þótt hann sé smár

Kínverjinn He Pingping er minnsti maður heims, samkvæmt Heimsmetabók Guinness, en He er einungis 74,1 sm að hæð og vegur sjö kíló. He sem er tvítugur fæddist með sjúkdóm sem kemur í veg fyrir að beinin vaxi. Hann segir að það sé margt verra að vera lágvaxinn enda margur er knár þótt hann sé smár. Hann komist til að mynda ýmislegt sem aðrir lenda í vandræðum með og hann geti borðað eins mikið og hann geti í sig látið. 

„Ég er ekkert sérstaklega öfundsjúkur út í þá sem eru hávaxnir. Ef þú ert hávaxinn þá getur verið erfitt að hreyfa sig og það getur verið bagalegt," segir He.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú heldur af þér með að gera eitthvað. Leyfðu sjálfstraustinu að njóta sín, því það er þitt bezta vopn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú heldur af þér með að gera eitthvað. Leyfðu sjálfstraustinu að njóta sín, því það er þitt bezta vopn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar