Rússnesk stjórnvöld eru orðin svo þreytt á að drösla fullum farþegum út úr rússneskum flugvélum, að þau ætla nú að banna áfengisveitingar um borð í flugvélum í rússneskri lofthelgi.
Að sögn rússneskra yfirvalda eiga drukknir farþegar oft sök á því að flugvélar halda ekki áætlun. Fyrir viku seinkaði brottför rússneskrar flugvélar frá Moskvu til Bangkok um marga klukkutíma vegna drykkjuláta farþeganna í flugstöðinni, að því er kemur fram á fréttavefnum standby.dk.