Lést eftir keppni í pönnukökuáti

Pönnukökur bakaðar á Rauða torginu í Moskvu.
Pönnukökur bakaðar á Rauða torginu í Moskvu. AP

Sigurvegari í rússneskri pönnukökuátskeppni féll dauður niður eftir að hafa troðið í sig 43 pönnukökum með banana og rjóma. Boris Isayev, sem var 48 ára gamall og frá vesturhluta Rússlands, féll niður á hnén og lést á sviðinu eftir að hafa rennt niður hverri pönnukökunni á fætur annarri í keppni sem var lokapunkturinn í árlegri „Pönnukökuviku“ héraðsins.

„Hann hafði virkilega notið þess að borða pönnukökurnar en svo fór hann að froðufella í munnvikunum og féll niður eins og poki fullur af grjóti,“ segir eitt vitna að atburðinum. „Við höfum áður sé fólk falla í yfirlið [á meðan keppninni stendur].“

Áhorfendur lýstu Isayev sem „virkasta þátttakendanum í keppninni“ og bættu því við að hann hefði „borðað allar gerðir af pönnukökum sem voru í boði og unnið réttmætan sigur.“

Nákvæm dánarorsök Isayev liggur ekki fyrir en læknar telja að hann hafi kafnað eftir að biti úr pönnuköku festist í hálsi hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir